Argentína

Halló Argentína!

Eins óraunverulega og það hljómar, þá erum við komin til Argentínu! 🇦🇷

Eftir tvo góða daga í London í ágætis vorveðri á íslenskan mælikvarða tók við 14 tíma flug beint til Buenos aires.

Flugið með Norwegian gekk dásamlega vel, keyptum okkur dýrari sæti þar sem hægt var að halla sætinu alveg niður. Við fengum því dýrmætan nætursvefn 🙏🏻 Sem var eins gott því við tók rúmlega klukkustundar röð í gegnum immigration, þar sem allt gekk á hraða snígilsins. Ekki nóg með það, þá var hreinlega ómögulegt að fá stóran Uber hér í borg. Við gáfumst upp á Uber eftir annan eins klukkutíma og ákváðum að hoppa upp í stóran Taxa, þrátt fyrir að hafa heyrt að það væri algjört NoNo 😲 við ákváðum að treysta eldri manni sem keyrði okkur alla leið að Airbnb íbúðinni okkar sem staðsett er ca 45 mín frá flugvellinum. Farið kostaði heila 35 us dollara 😅

Dugleg að bíða eftir fari í húsið
Mjög þreytandi að bíða

Húsið sem við leigðum er staðsett í úthverfi Buenos aires sem heitir San Fernando – Virreyes og tekur um 20 mín að komast í mesta fjörið. Hér erum við örugg í gated community, erum í húsinu þeirra Male og Ramiro. Male er einhverskonar innanhússhönnuður og er dugleg að instagramma það sem hún gerir og því sem við kemur að viðhaldi á húsinu.

Hún er með https://www.instagram.com/greenhouse.ok/ á insta ef einhver vill sjá instafegraðar myndir af húsinu 😆

Í dag og næstu daga er planið að ná áttum og jafna okkur á tímamismun – þótt hann sé nú ekki mikill (- 3 klst) og venjast hitanum. Hér er náttúrulega hásumar og getur orðið ansi heitt yfir daginn eða + 30°.

Hér þurfum við ekki að hafa áhyggjur af tiltekt en við fáum daglega húshjálp, Fernanda sem sér um öll þrif en hún kemur á hverjum degi! hér er ætlast til og algengt að fólk hafi húshjálp, allavega í úthverfum. Þetta er frekar óvanalegt fyrir okkur og er eitthvað sem við þurfum að venjast! Stelpunum finnst mjög óþægilegt að hafa ókunnuga konu í húsinu og vilja helst halda sig í herberginu sínu meðan hún er hér 😅

Meðan stelpurnar brenna orkunni í lauginni ætlum við að skipuleggja lærdóminn og búa til dagskrá. Hér í göngufæri eru litlar verslanir og kaffihús þar sem hægt er að fá allt til alls, meðal annars föndurdót og skriffæri. Við neyðumst til að læra eitthvað í spænskunni sem er jákvætt því planið var að fá okkur spænskukennara. Á okkar svæði eru nefnilega engir túristar og örfáir sem tala ensku. Næsta mál á dagskrá er því að finna kennara og bóka okkur í einhverjar menningartengdar ferðir á næstu dögum.

Á kaffihúsinu sem er hér í göngufæri, að spila og borða Argentískar kökur