Argentína

Buenos Aires

Við höfum ekki verið mikið á faraldsfæti eftir að við komum hingað. Ákváðum að nota fyrstu dagana í að koma vinnu og skóla í gang, búa til skipulag og fleira. Við ákváðum þó að fara í dagsferð inn í El capital eins og margir heimamenn tala um eða Buenos Aires. Það tekur okkur um hálftíma í bíl að komast og ekki nema um 1200 íslenskar krónur.

Við ákváðum að stoppa fyrst á 9 de Julio avenida sem er eitt helsta kennileiti borgarinnar. Gatan vísar í þjóðhátíðardag Argentínubúa, 9. júlí og er ein sú breiðasta í heimi með heilar níu akreinar hvorum megin (140m). Í miðjunni er fallegt torg með minnisvarðanum Obelisco sem er einnig vinsæll áfangastaður ferðamanna.

Við fengum okkur hádegismat á elsta kaffihúsi borgarinnar en við eiginlega römbuðum þangað fyrir slysni. Við sáum röð fyrir utan og hugsuðum með okkur að þetta hlyti nú að vera geggjaður staður. Það ríkti mikil leynd yfir staðnum enda var dregið fyrir alla glugga og fólk beið með símana á lofti til að taka myndband þegar það loksins fékk að ganga inn. Við vorum búin að gera okkur svo miklar vonir en svo var staðurinn bara meðalgóður 🙂

Því næst gengum við að Casa Rosada sem er forsetabústaður Argengtínu og er staðsettur við Plaza de Mayo. Nafnið á torginu er nefnt eftir þeim mánuði sem Argentína vann sjálfstæði frá Spáni 1816, maí-torg og eru margar sögufrægar byggingar þarna í kring. Kannski þekktast er þegar Eva Peron eða Evita stóð á svölunum á Casa Rosada og hélt ræður ásamt eiginmanni sínum Juan Peron.

Við tókum svo göngu um La Boca en það er skemmtilegt og litríkt hverfi, svolitið miðað að ferðamanninum. Þar er hægt að sjá og upplifa hvað felst í argentískri menningu – litir, gleði, dans, tónlist og matur. Stelpurnar eiga mjög erfitt með að sjá alla flækingshundana sem eru hér en svo virðist sem þeir lifi bara ágætis lífi. Þeim er gefið að éta og fá að drekka hjá heimamönnum. Við sáum konu sem var með nokkra hunda sem hún hafði greinilega tekið að sér og var búin að þjálfa upp fyrir uppstillingu fyrir myndatöku, auðvitað fyrir smá pening. Maður hálfvorkenndi dýrunum en hún var með treat til að gefa þeim og þeir virtust sáttir.

Við enduðum daginn á steikhúsi þar sem við fengum RISA steik sem okkur láðist að taka mynd af 😲 ætli við verðum ekki bara að fara aftur til að geta deilt því með ykkur ☺️