Spænskukennarinn og Sendiherra Argentínu

Frá því við hófum þetta ferðalag okkar var alltaf hugmyndin að vera í dágóðan tíma á hverjum stað eða heimshluta. Við vissum til dæmis að við myndum vera ansi lengi, eða rúmlega tvo mánuði, í spænskumælandi löndum og að líklega væri nytsamlegt að læra tungumálið. Kemur svo auðvitað í ljós að það er ansi mikill…

Chile

Við komum til Chile þann 5. febrúar eftir að hafa verið mánuð í Argentínu. Mjög þægilegt ferðalag yfir frá Argentínu, bara 2 tíma flug og svo tók við um 1,5 klst akstur frá höfuðborginni Santiago til Vina del mar en þar erum við með íbúð. Við ákváðum að vera ekki í Santiago enda er hitinn…

Ferð til Uruguay

Stelpurnar voru mjög spenntar fyrir hestaferð og eftir að hafa skoðað úrvalið af ferðum í gegnum Airbnb fundum við fullkomnu ferðina. Bæði var það hestaferð og ferðalag yfir til nágrannana í Uruguay. Við ákváðum að fara degi fyrr og gista eina nótt á hóteli, annars hefðum við þurft að vakna mjög snemma og vera þreytt…

Ferð í Recoleta

Þegar við höfum verið að fara inn í Buenos Aires sem er reyndar ekki oft, höfum við þurft að skipuleggja aðeins daginn. Borgin er svo stór að það er erfitt að komast yfir marga hluti í einu. Svo er líka búið að vera mjög heitt þannig að við höfum reynt að fara þegar það er…

Matur og vín í Argentínu

Það er erfitt fyrir mig að lýsa því hversu gaman það er fyrir mig að versla í matin hér í Argentínu. Matur sem er framleiddur í Argentínu kostar nánast ekki neitt, fyrir okkur Íslendingana allavega! Það sama má einnig segja um þeirra vín. Allt eru þetta þó vörur með mikil gæði og ég fullyrði t.d.…

Matur matur matur!

Ég held að við höfum sjaldan verið eins dugleg að grilla eins og síðustu daga. Í húsinu sem við erum í er risastórt útigrill ásamt pizzaofni. Það er mjög freistandi að leyfa sér ýmislegt í mataræðinu hér, matur sem við köllum lúxus heima er eitthvað sem heimamenn borða hér daglega. Það er hægt að verða…

Leave a comment