Ég held að við höfum sjaldan verið eins dugleg að grilla eins og síðustu daga. Í húsinu sem við erum í er risastórt útigrill ásamt pizzaofni. Það er mjög freistandi að leyfa sér ýmislegt í mataræðinu hér, matur sem við köllum lúxus heima er eitthvað sem heimamenn borða hér daglega. Það er hægt að verða sér út um úrvalsnautalund á innan við 1000kr kílóið og með því er hægt að fá sér rauðvínsflösku á 200kr.
Það er því mjög auðvelt og freistandi að leyfa sér í mat drykk. Hér er þvílíkt úrval af nautakjöti, ostum og víni. Eins og gefur að skilja. Það er mjög ríkt í menningunni að grilla og það er mjög fyndið að á ákveðnum tíma dags að þá finnur maður lyktina í loftinu, þá eru allir að grilla. Asado er það kallað þegar allskonar kjöt er grillað yfir opnum eldi.
Hér nálægt okkur er lítill verslunarkjarni þar sem hægt er að ná í helstu nauðsynjar. Þar eru meðal annars kaffihús, veitingastaðir, apótek, bakarí og kjötverslun. Þetta er frekar fancy kjarni – þar sem við búum meðal efnaðra heimamanna. Hér er því allt mjög snyrtilegt og fínt, sem er frekar sjaldséð sjón því miður. Í kjötbúðinni er hægt að fá úrvalskjöt og meðlæti fyrir lítinn pening. Teddi er rosalega glaður með þetta og hefur tekið alfarið að sér eldamennskuna ☺️
Það sem hefur komið okkur mest á óvart er hversu lítið úrval eða lélegt úrval er af ávöxtum og grænmeti. Ég var búin að hlakka til að fá mér djúsí ber og brakandi ferskt salat. Við fórum í nokkrar stórverslanir (Carrefour, Walmart og Jumbo t.d) áður en við áttuðum okkur á því að það eru sérstakar gourmet búðir sem selja ferska ávexti og grænmeti.
Matarmenningin er aðeins öðruvísi en því sem við erum vön þannig að það er auðvelt að eiga í Love-hate sambandi við matinn hérna. Það er alveg ótrúlegt að labba inní riiisa stóra matvöruverslu og sjá allt úrvalið af kjötvöru og ostum sérstaklega – einnig víni að sjálfsögðu enda Argentínumenn þekktir fyrir gott léttvín. En þegar kemur að óhollustu eins og við erum vön að sjá í verslunum heima er nánast ekkert úrval.
Það sem er innflutt frá USA er rándýrt og kostar margfalt meira en heima. Þannig að það er lítið úrval af slíkum vörum. Það sem er vinsælast af brauðmeti eru medialunas eða croissants. Svo eru auðvitað til óhollustu brauð og kökur en úrvalið er ekki upp á marga fiska. Kex og nammi þekur ca 1/4 af rekka í stórri búð.
Eftirréttir eru oftast ekki mjög sætir, oft eru t.d ávaxtasalöt í eftirrétt. Þeir eru mjög hrifnir af “flan” sem er búðingur sem er líkur creme brulee og er borinn fram með dulce de leche sem er karamella. Þetta er mjög vinsælt hér.
Argentínubúar elska kökurnar sínar sem kallast “alfajores” sem eru einskonar maiskökur með dulce se leche á milli. Þær er þó hægt að fá í alls konar útgáfum. “Nammibúðirnar” hér eru aðallega frá framleiðanda sem selur alfajores en þær heita “Havanna”. Okkur finnst þessar kökur ekkert frábærar, þessar einföldu eru bestar.


Við fengum þessa gjöf þegar við mættum í húsið. Svona lúxus útgáfa af Alfajores
Það er semsagt ástæða fyrir því að fólk hér er almennt mjög fit og flott. Það er ekki mikið borðað af sælgæti og hér hreyfa allir sig mikið.
Það má samt ekki draga úr því að ég hef sjaldan séð eins marga skyndibitastaði og hér. Það er mcDonalds á hverju horni liggur við. Við erum ekki spennt fyrir skyndibitastöðunum og reynum að velja frekar local staði en þegar maður er svangur er auðvelt að falla í þá gryfjuna 😅
Empanadas! þeim má ekki gleyma. Empanadas eru litlar bökur, yfirleitt með nautakjöti og grænmeti innan í. En hægt að fá í alls konar útgáfum. Við höfum reyndar ekki verið dugleg að fá okkur svoleiðis, þær eru mjög bragðgóðar og einfaldur matur. Annars erum við dugleg að fara út að borða, það er alls ekki dýrt. Hér er er yfirleitt hægt að fara út að borða á góðan stað fyrir um 6000isk. Þá eru kokteilar fyrir okkur Tedda með í því, ásamt bjór eða rauðvíni. Oft líka einn eða tveir eftirréttir. Ódýrari staðir eins og hér nálægt er frábær hamborgarastaður, við getum borðað okkur södd fyrir um 3000kr. (með bjór). Það hefur komið fyrir að við vitum ekki hvað við erum að panta eða hverju við eigum von á, en við látum það nú ekki stoppa okkur og látum vaða, yfirleitt er allt mjög gott. Læt hér fylgja með nokkrar matarmyndir í lokin.




















