Það er erfitt fyrir mig að lýsa því hversu gaman það er fyrir mig að versla í matin hér í Argentínu. Matur sem er framleiddur í Argentínu kostar nánast ekki neitt, fyrir okkur Íslendingana allavega! Það sama má einnig segja um þeirra vín. Allt eru þetta þó vörur með mikil gæði og ég fullyrði t.d. að nautakjöt hér sé mun betra en það sem gengur og gerist á Íslandi. Ódýrast er væntanlega að kaupa í Walmart eða Carrefour búðum hér og í tilfelli Carrefour er hægt að velja kjöt í mismunandi gæðastigi alveg upp að “Premium” þar sem nautalund er c.a. 900 ARS per kíló. Það er c.a. 2000 krónur ef greitt væri með kreditkorti en ef maður nýtir sér bláa gengi gjaldmiðilisins (https://ferdalangar.travel.blog/2020/01/11/gjaldeyrisbraskari-i-argentinu/) og kaupir pesóa með dollurum þá er þetta c.a. 1500 krónur fyrir nautalund af bestu gæðum!
Það er lítill verslunarkjarni hér nálægt með lítilli matvörubúð auk sérvöru búða og þó þetta sé ekki ódýr búð sé miðað við Carrefour t.d. þá finnst okkur þetta vera gjafaverð. Í þeirri búð kostar nautahakk 500 krónur kílóið og entrecote steik 700 krónur kílóið.
Við keyptum reyndar yfirleitt annaðhvort í Carrefour eða í sérvöruverslunum og gourmet kjötvörubúðin var örlítið dýrari en vel þess virði og þar var yndislegt úrval af dýrindis kjöti af allskonar toga en við keyptum rúmlega 5kg sem samanstóð af 2kg af nautalund, c.a. 1kg af ribeye, og 1,5kg af picanha (sem er ótrúlega gott!). Þetta kostaði rétt rúmlega 5000 krónur og erfitt að lýsa hversu gott það var og læt ég því bara myndirnar tala sínu máli. Við spurðum hvað væri gott rauðvín með þessum mat og eigandinn rétti okkur eina flösku og sagði að við mættum eiga hana og hún var yndisleg með kjötinu.
Að sama skapi er argentískt vín hlægilega ódýrt miðað við gæði og þó við vitum ekki mikið um slíkt þá erum við rosalega hrifin af Malbec rauðvíninu sem hægt er að fá hér alveg niður í 100 krónur flöskuna þó góð gæði byrja kannski ekki fyrr en um 200 krónur. Hér er t.d. hægt að fá “Hey Malbec” sem er bara þrusugott á c.a. 400 krónur. Mælum eindregið með þessu og ég get ekki ímyndað mér að svona ferðir til Argentínu geti verið mjög vinsælar og innfæddu eru mjög stolt af sínu víni. Allir hér tala um að maður eigi að fara upp að Andes fjöllunum hjá Mendoza og að þar séu mörg bestu vínin að finna.





































