Argentína

Ferð í Recoleta

Þegar við höfum verið að fara inn í Buenos Aires sem er reyndar ekki oft, höfum við þurft að skipuleggja aðeins daginn. Borgin er svo stór að það er erfitt að komast yfir marga hluti í einu. Svo er líka búið að vera mjög heitt þannig að við höfum reynt að fara þegar það er “bara” 27 stiga hiti en ekki 30 plús. Við sjáum mjög mikinn mun á úthaldinu hjá stelpunum þegar það er aðeins svalara. Þær eru ekki bara orkumeiri heldur líka betri í skapinu 🙂

Við gengum einn daginn um 11 kílómetra í Recoletta (hverfi í Buenos Aires) þannig að bæjarferðirnar eru okkar líkamsrækt líka. Í Recoleta er ótrúlegur kirkjugarður, með grafhýsum ýmissa efnaðra fjölskyldna. Þar hvílir meðal annars Duarte fjölskyldan ásamt Evu Perón (Evitu). Það vakti athygli okkar að hennar grafhýsi var frekar tilkomulítið miðað við önnur en klárlega það sem dró að sér mestu athygli.

Það var svolítil upplifun að ganga þarna um, mjög ólíkt þeim görðum sem við höfum heima. Stelpunum fannst hálfógnvekjandi að kíkja inn í sum grafhýsin þar sem kisturnar sáust, sum voru í algerri niðurníðslu á meðan öðrum er vel viðhaldið með aðstöðu þar sem fjölskyldan getur komið og syrgt.

Við gengum að Floralis Genérica sem er fallegur skúlptúr í hjarta Recoletta. Svæðið í kring er ótrúlega fallegt og friðsælt. Skúlptúrinn eða blómið opnast og lokast eftir því hvernig sólin skín á það. T.d. lokast það alveg á kvöldin.

Það eru ótrúlega margir fallegir garðar inni í höfuðborginni. Þeir taka við liggur við hver af öðrum og eru hver öðrum fallegri. Við fórum í japanska garðinn en það er líklega eini garðurinn sem þurfti að borga sig inn. Það kostar annars lítið eða ekkert inn á staði eða söfn. Það er líka alltaf frítt fyrir börn. Japanski garðurinn er æðislegur, þar er fjölbreyttur gróður og mikið úrval af bonsai trjám. Stelpurnar nutu sín í að gefa Koi fiskum að borða og keyptu sér svo japanskan brjóstsykur, það þarf ekki mikið til að gleðja þær 🙂