Frá því við hófum þetta ferðalag okkar var alltaf hugmyndin að vera í dágóðan tíma á hverjum stað eða heimshluta. Við vissum til dæmis að við myndum vera ansi lengi, eða rúmlega tvo mánuði, í spænskumælandi löndum og að líklega væri nytsamlegt að læra tungumálið. Kemur svo auðvitað í ljós að það er ansi mikill munur á framburði milli landa! Grunnurinn á tungumálinu er samt nánast sá sami og við höfum hægt og rólega náð ágætis valdi á tungumálinu og jafnvel mismunandi framburð þó sumir hlutir í framburð reynast okkur mjög erfðir. Við getum núna bjargað okkur án þess að þurfa stöðugt að lyfta upp símum og getum yfirleitt skilið hvað fólk er að spyrja okkur um. Við höfum ekki enn náð nógu góðu valdi til að geta átt almennilegt samtal við fólk en með áframhaldandi æfingu kemur það vonandi.
Mig langaði aðeins að að lýsa þeirri aðferð sem við duttum inn á fyrir einskæra tilviljun sem virðist hafa gengið vel hjá okkur og eitthvað sem við mælum klárlega með. Þetta þróaðist yfir í þrjá aðskilda en tengda hluti sem virtust virka mjög vel saman allavega fyrir okkur.
- Finna spænskukennara með áherslu á skilning/málfræði, tjáningu, ásamt stöðugum æfingum sem hægt er að æfa eftir tímana
- Nota Duolingo til þess að hafa gaman og skerpa á skilning og auka orðaforða
- Atferlisæfingar og tilraunir útbúið fyrir krefjandi aðstæður
Spænskukennarinn Clementina
Við vissum strax að við vildum finna góðan spænsku kennara og þó við vissum af Preply þá er það fyrst og fremst fyrir netnám og þó það getur líklega virkað þá vildum við eitthvað meira. Við ákváðum því að leita á náðir Airbnb gestgjafa okkar sem fann eina sem hún sagði að væri góð og að það kostaði 10 dollara á klukkutíman. Okkur fannst það ekki mikið fyrir einhvern með reynslu en óhætt er að segja að við duttum í lukkupottinn með hana Clementinu Escalona. Hún er stærðfræðikennari að mennt og starfar við það, en er að auki með próf og gráðu í spænskukennslu. Sú aðferð sem við beittum til að ná valdi á tungumálinu kemur að mestu frá henni og á hún miklar þakkir skilið. Að hennar tilsögn þá brutum við þetta upp í tvo námshópa, þá annarsvegar okkur fullorðnu í klukkutíma á dag og svo stelpurnar í klukkutíma þar sem var meiri áhersla á leikrænar aðferðir og grunn í tölum og orðaforða. Þetta gekk svo ljómandi vel að við vorum farin að taka 4 tíma á viku með henni!

Eftir því sem á leið þá kynntumst við henni Clemi, eins og hún er kölluð, alltaf betur og betur og fræddumst meir um Argentínu og fólkið hennar. Við komumst t.d. að því að bróðir hennar sem býr í Ástralíu er góðvinur íslenskrar stelpu til marga ára og í gegnum það vissi hún ýmislegt um Ísland. Eftir seinasta tíman okkar með henni þá var hún búin að bjóða okkur í heimsókn til móður og föður hennar sem ætluðu að halda lítið boð fyrir okkur. Við vorum mjög þakklát en höfðum samt ekki hugmynd um hversu yndisleg lífsreynsla það yrði að kynnast Clemi og hennar fjölskyldu betur. Þegar við mættum voru þar tvö af fjórum systkynum hennar Clemi auk manna þeirra og mér var sérstaklega minnisstætt hversu Íslendingalegur hann Christian var en hann kemur frá Patagóniu þar sem fólk er nokkuð líkt evrópubúum.
Það var gríðarlega mikil gestrisni hjá þeim og við fengum við að smakka alveg ótrúlega marga argentíska rétti og vín! Það var eins og væri verið að sýna okkur allt það frábæra sem þetta land hefur upp á að bjóða. Það kemur svo í ljós að faðir hennar Clementinu, hinn virðulegi Fernando Escalona starfaði sem sendiherra Argentínu í Nýja Sjálandi frá 2012 til 2017 og er augljóslega vanur að kynna land sitt. Enskan þeirra allra var einstaklega góð en fjölskyldan hafði jú ferðast um allan heimin í gegnum störf Fernando’s og voru þau mjög veraldarvön. Það var einstök upplifun að fá innsýn í alla þá fjölbreyttu staði sem þau hafa heimsótt í gegnum árin en það var ljóst að hjarta þeirra, og þá sérstaklega herra Escalona, lá í Argentínu. Þau töluðu af miklum hjartmóð og ástríðu um landið um allskonar hluti eins og…
…Andes fjöllin og norðurhluta Argentínu (Salta) , vínhéröðin í Mendoza, og svo ekki síst Patagoniu og syðsta hluti landsins. Stoltið var augljóst og það var ómögulegt að hrífast ekki með þegar herra Escalona tjáði sig. Ég er allavega algerlega smitaður af þessu landi og öllu sem það hefur upp á að bjóða. Það var líka erfitt að sjá svipi þeirra allra þegar við ræddum ástandið í Argentínu í dag. Það er augljóslega gríðarlegt hitamál og ristir djúpt því þetta bitnar á flestum í samfélaginu og ekki síst þeim sem hafa minnst þó miðstéttinn er augljóslega líka að þjást í þeirri óðaverðbólgu og spillingu sem ríkir. Ég held samt miðað við allt sem ég hef séð frá þessu landi að það muni vonandi rísa aftur upp og ná fyrri velmegun með góðum vilja og elju heiðarlegs fólks eins og herra Escalona og alls hans fólks. Mér fannst ég upplifa margt sem ég tengdi við hrunið 2008 hjá okkur Íslendingum og einnig þær sögur sem foreldrar mínir sögðu mér frá verðbólgunni á áttunda/níunda áratugnum á Íslandi þar sem fólk missti í raun allt sitt.
En snúum okkur aftur að spænskunáminu! Við notuðum Duolingo appið eins og áður sagði til að skerpa orðaforða og ýta undir skilning. Það var ekki bara gaman heldur virkilega nytsamlegt og stundum vorum við á undan henni Clemi með orðaforða okkur til mikillar ánægju. Þetta er líka heppilegt fyrir stuttar æfingar í stað þess að kíkja á tölvupóst eða Facebook og tekur alls ekki langan tíma hverju sinni. Mæli eindregið með þessu og þó það kostar aðeins þá er það hverrar krónu virði!
Það þriðja og það mikilvægasta ef maður ætlar virkilega að ná einhverjum tökum á samskiptum við annað fólk er samt stöðugar æfingar. Þetta gæti hljómað eins og sjálfssagt mál sérstaklega þar sem maður er nú einu sinni staddur í spænskumælandi landi . Vandamálið er samt að maður missir sjálfstraust eða veit ekki hvað maður á að segja þegar maður lendir “spontant” aðstæðum og það var að gerast í sífellu hjá okkur. Það var því mikilvægt að ákveða fyrirfram einskonar atferlisæfingar (“role play”) þar sem við jafnvel sviðsettum ákveðna hluti fyrirfram og fórum svo markvisst að gera þá í raun og veru. Fyrir sviðsettningar þá var Clemi mjög hjálpleg en hún bjó til sviðsmyndir fyrir okkur og svo æfðum við okkur með henni og jafnvel við sjálf saman. Það er samt ekki það sama og að gera upplifa það í raunveruleikanum og það gerðum við næst og höfum haldið því áfram.
Að fara á veitingastað og tala eingöngu spænsku með öllu ferlinu er erfiðara en að segja það. Allt frá því maður heilsar yfir að að velja rétti og spyrja hvað það kostar. Matseðlar hér eru ekki á ensku og innihalda allskyns smáatriði sem virkilega þarf að pæla í er mjög góð æfing. Þegar maður nær svo öllu ferlinu með t.d. nokkuð flóknum réttum er mjög jákvæð upplifun. Að sama skapi er gott að æfa hluti eins og símtöl þar sem beðið er um eitthvað, prófa að láta einhvern stafa hluti og reyna að fatta það. Það að ræða kostnað og og tölur er allt eitthvað sem er mun erfiðara í raun og veru heldur en í appi eða undir handleiðslu kennara. Þetta er samt held ég sé besta leiðin til að festa þekkingu vel því annars er maður ekki raunverulega að ná valdi á tungumálinu!
En óháð því hvort fólk fylgi okkar aðferð eða ekki þá er þetta eitthvað sem við mælum hiklaust með og það er bara ótrúlega gefandi að upplifa það að maður sé að ná ágætis grunn í spænsku á tveimur mánuðum.











