Chile

Chile

Við komum til Chile þann 5. febrúar eftir að hafa verið mánuð í Argentínu. Mjög þægilegt ferðalag yfir frá Argentínu, bara 2 tíma flug og svo tók við um 1,5 klst akstur frá höfuðborginni Santiago til Vina del mar en þar erum við með íbúð.

Vina del mar

Við ákváðum að vera ekki í Santiago enda er hitinn þar óbærilegur, rúmlega 30 gráður sem er bara of heitt fyrir okkur. Við erum eiginlega á því að vont veður getur verið of gott – og okkar plan er að ef við getum verið úti án þess að stikna eða kafna úr hita þá er gott veður 🙂

Hér er ALLTAF 22 gráður og sól sem er fullkomið. Við erum staðsett aðeins fyrir utan Vina del mar en erum þó í göngufæri við flest m.a. nokkrar strandir.

Maria með súkkulaðihúðuð jarðaber

Við erum þó þannig staðsett að hér er alltaf mikið af fólki allsstaðar, þetta er aðalferðamannastaður Chile, bæði fyrir innfædda og utanaðkomandi þannig að strandirnar hér eru pakkaðar. Í janúar og febrúar eru allir í fríi í S-Ameríku sem þýðir = enn meira fólk. Við erum þó ánægðari með að geta verið eitthvað úti, fullkomið hitastig og við erum aðeins útúr þannig að það er ekki mikið áreiti í kringum okkur.

Mikið um að vera, matur, drykkir og sölubásar

Húsið okkar er 25 hæða fjölbýli, við erum á 4. hæð. Við höfum aðgang að sundlaug og líkamsrækt og hér stutt frá er öll þjónusta sem við þurfum. Annars förum við allt í Uber en það er frekar ódýrt, þó ekki eins ódýrt og í Argentínu.

Hér er allt um 30% dýrara en í Argentínu. Verðin þar eru sum bara algjört djók og maður skilur eiginlega ekki af hverju það er ekki fleiri túristar þar miðað við hvað hægt er að fá fyrir peninginn.

Stelpurnar létu teikna mynd af sér, það má deila um hvort þetta sé líkt þeim!

Við erum ekki að fara að sjá fram á að vera mjög menningarleg hér í Chile enda erum við á ferðamannastað þar sem mikið er gert út á mat, drykk og djamm – en við erum ekki alveg í þeim hugleiðingum!

Annars erum við núna að njóta þess að fara á ströndina í dásamlegu veðri á milli þess sem við bæði vinnum og sjáum um kennslu stelpnanna. Við þurfum að átta okkur á hvað við getum gert meira skemmtilegt hér og upplifa hvað landið hefur upp á að bjóða 🙂

Leave a comment