Lífið hér er sko ekki eintómt frí þótt það sé auðvelt að detta í þann gírinn. Að vakna við birtuna, sólargeislana og fuglasönginn er dásamlegt og að geta sest út með morgunkaffið til að plana daginn er eitthvað sem hægt er að venjast.

Við byrjum vanalega daginn á að vekja stelpurnar um 8 leytið, til að halda rútínu. Ég bjó til stundaskrá sem getur verið breytileg frá degi til dags, veltur á þeim plönum sem við ákveðum, aðallega útfrá veðurspá.

Týpískur dagur er að byrja á stærðfræði um 9 leytið og vinna í henni þar til spænskukennarinn okkar, Klementina kemur. Þá tekur við klukkustund í spænsku fyrir okkur Tedda og svo klukkutími fyrir stelpurnar. Meðan við Teddi erum í spænsku fá stelpurnar vanalega verkefni sem þær geta leyst án aðstoðar eða unnið saman í t.d skrifa póstkort, vinna í book creator (sniðugt app til að setja saman ferðasögu – þar er hægt að blanda saman myndum, myndböndum og skriflegu formi) sem þær senda svo á bekkinn sinn á Íslandi.
Eftir spænskuna höfum við tekið matarhlé og svo hreyft okkur t.d göngutúr/sund en það hefur verið erfitt vegna hita. Í lok “skóladags” höfum við tekið íslensku.
Sumt hefur verið ansi krefjandi og við kannski ekki bestu aðilarnir til að útskýra, við höfum þá fengið hjálp frá afa Rúnari með stærðfræðina og ætlar afi Gísli líka að hjálpa. Það hefur reynst erfitt að finna rétta tímann þar sem það er þriggja tíma munur og afarnir fara ansi snemma í háttinn 😅

Við erum annars mjög sveigjanleg með lærdóminn en reynum að halda áætlun, við sjáum alltaf hvar skólafélagarnir eru staddir í náminu heima. Planið hjá okkur var líka að vinna okkur eitthvað áfram til að eiga inni frídaga t.d. til að fara í ferðir. Það hefur að vísu gengið hægt hjá okkur enda mikið búið að vera að gera í verkefnum hjá mér og Teddi er byrjaður í sinni vinnu eftir smá frí. Spænskukennslan tekur lúmskan tíma þannig að annað verður að bíða á meðan.
Það hefur komið okkur á óvart hversu krefjandi sumt af námsefninu er fyrir stelpurnar og reynum við þá að gefa okkur meiri tíma í það, annars eru þær ótrúlega duglegar og kvarta lítið. Þær eru alltaf spenntar fyrir spænskukennslunni enda Klementína frábær kennari og er snillingur í að miðla efninu í gegnum leiki, sérstaklega hlutverkaleiki. Á morgun munu stelpurnar t.d. setja sig í spor kaffihúsaeigenda og við eigum að panta mat og drykki 🙂

