Þegar við vorum að skoða hvar væri nú best að vera í Argentínu komu margir staðir til greina. Eftir að hafa lesið okkur til langaði okkur helst að vera í kringum höfuðborgina og komu þá nokkur svæði til greina. Borgin er stór, en þar búa um 3 milljónir manna og er ekki einn eiginlegur miðbær heldur eru nokkur hverfi sem gaman er að heimsækja. Ég veit ekki hversu mörgum kvöldum við Teddi sátum yfir Airbnb að skoða mismunandi íbúðir inni í borginni. Það er erfitt að finna hina fullkomnu íbúð sem hentar fyrir fjölskyldu með kröfur! við vildum helst hafa aðgengi að sundlaug en það sem var bara í boði voru litlir pottar og helst til of þröngar íbúðir. Byggðin er mjög þétt og mikið um háar íbúðarblokkir í misgóðu ásigkomulagi. Við vorum fegin að hafa ákveðið að vera í úthverfi eftir að hafa farið inn í borgina, þótt hún búi yfir miklum sjarma þá er mikill kostur að geta verið útaf fyrir sig í ró og næði, með nægilega mikið pláss og jú sundlaug! Hér erum við líka handviss um að upplifa meira enda nánast “út í sveit” og aðeins innan um heimamenn.

Það kom til greina að vera í nokkrum hverfum innan Buenos Aires, það sem við lásum helst til um er að Belgrano er það fjölskylduvænasta, það er frekar rólegt og fínt upper-middle class hverfi og telst nokkuð öruggt. Palermo er stórt hverfi og skiptist í mörg lítil hverfi. Það er þekkt fyrir að vera frekar hipp og cool. Þar er mikið um að vera og þekkt fyrir gott næturlíf. Recoletta er þekkt fyrir falleg hús/arkitektúr. Fasteignaverð er með því hæsta sem gengur í borginni og þar eru einnig bestu skólarnir. La Boca er er skemmtilegt svæði með litríkum húsum og miklu lífi. Staðurinn miðar svolítið inná ferðamanninn en þar er mikið um túristabúðir með sömu vörunum og alls konar básum þar sem heimamenn selja handverk og annað. Þar er hærra crime rate en annars staðar en á að vera í lagi ef maður heldur sig á ferðamannastöðunum. Það fer ekki á milli mála að fótbolti er eitt aðalsportið hér, en það á að vera mjög gaman að heimsækja völl Boca Juniors eða boca juniors stadium.
Meira skoðuðum við nú ekki sérstaklega en hverfin hafa öll sinn sjarma og ekki erfitt að komast á milli staða.