Við erum búin að vera hér í Buenos Aires í nokkra daga og ég er strax farinn að stunda gjaldeyrisbrask í anda Samherja!
Ástandið hér í Argentínu er ekki gott efnahagslega og það ríkir líka mikil fátækt allt í kring um okkur og innviðir í niðurníslu. Landið er mjög fallegt og fólkið yndislegt. Við njótum forréttinda og búum við mikinn lúxus á mælikvarða innfæddra. 
Við komum hingað með töluvert af dollurum vitandi það að einhver áhætta væri í argentíska gjaldmiðlinum (ARS) og að betra gæti verið að hafa dollara. Hér eru gjaldeyrishöft og hömlur sem ég taldi mig þekkja frá Íslandi en munurinn er sláandi. Ef þú átt pesóa hér þá geturu bara að mestu skipt innlenda gjaldmiðlinum upp í 100 dollara á mánuði.
Á sama tíma taka nánast allir dollara hér og hafa flestir verið mjög ánægðir þegar við greiðum með dollurum. Ég var ekki alveg að skilja afhverju í fyrstu en af því ég er orðinn gjaldeyrisbraskari núna þá vildi ég deila þeirri reynslu.
Þegar við skoðum seðlabankagengi ARS þá er 1 ARS 2.06 krónur.

Það sem gjaldeyrishöft þýða er að seðlabanki landsins hefur lokað á frjálst flæði gjaldmiðilsins til að hefta eða takmarka verðbólgu sem var 34% 2018 og hefði væntanlega verið mun verri því pesóinn féll um 25% á nánast einum degi seinasta sumar.
Þannig að eins og á Íslandi eftir hrun var gengi gjaldmiðilsins ekki það rétta og það er við lýði annar svartur gjaldeyrismarkaður hér í Argentínu þar sem gengið er í raun mun lægra en seðlabankagengi. Þetta minnir mig mikið á árin eftir hrun á Íslandi og ég finn mikla samkennd með Argentínumönnum.
Ég veit ekkert hvernig þetta er í raun en mín leið til að herma eftir Samherja var eftirfarandi. Fara inn í kaffistofu og panta bjór með 20 dollurum og fá til baka “22” dollara í pesóum. Þetta ruglaði mig rosalega í fyrstu en núna finnst mér ég alltaf vera að græða þegar þetta gengur.
Rétt í þessu var ég að kaupa mér einn stóran bjór eftir göngutúr í góðu veðri hérna og hann kostaði 140 ARS eða ca 290 krónur íslenskar.

Og ég spyr hvort þeir taki við dollar og afgreiðsludaman segir já en að þau verði að greiða til baka í pesóum. Hún sýnir mér verðið í dollar og það er 1.98 dollarar sem er 243 krónur. Ég samþykki og fæ greitt til baka 1332 ARS eða 22.30 dollara!! 
Þannig að raungengi gjaldmiðilins er töluvert lægra en 2 krónur og munar c.a 10-15%. Það er væntanlega hægt að fá betri díla á þessum svarta markaði og ég ætla að spyrja fólk um þetta hérna því það virkar sérstakt að fá meira til baka en maður lagði út.
En já þetta er stutta sagan af mínu gjaldeyrisbraski og ef þið farið til Argentínu þá er gott að vita þetta. Hafa þarf samt í huga að bankar og stórar verslanir miða við seðlagengi, allavega fyrir túrista, og maður þarf að athuga þetta og ef það er ekkert vit í því þá ætti maður frekar að nota kreditkortið.

Uppfærsla 2 febrúar 2020:
Eftir að hafa verið hér í Argentínu í mánuð þá lærðum við betur á þessi gengismál hér og svo virðist vera að a.m.k. 4 gengi eru í gangi og það sem flest fólk hér í argentínu miðar við er gengi bláa dollarans eða “blue dollar” og þar er munurinn enn meirandi sláandi eða c.a. 30% og þegar þetta er skrifað er seðlagengi ARS 58 en hægt er að selja bláa dollarann á 74 – https://bluedollar.net/. Við nýttum okkur þetta vel en við notuðum svokölluð “Cambios” sem má finna víðsvegar í miðbæ Buenos Aires. Það er tvennt sem ber að varast þegar kemur að þeim þó og þegar að kemur að fölsuðum seðlum þá er þetta eitthvað sem er sérstaklega notað gagnvart túristum.
Í fyrsta lagi munu þeir bjóða lélegra gengi og segja að þeir kaupi á 70 þegar innfæddu selja á 74 og því mikilvægt að fylgjast með genginu á https://bluedollar.net/ og sýna þeim hvað það er í raun og veru upp á að þurfa ekki að prútta of mikið. Muna líka að stærri seðlar eins og 100 dollara seðlar hafa meiri gildi hér svo það væri jafnvel hægt að fá meir.
Það næsta er verulega pirrandi og gæti jafnvel þýtt það að maður tapaði stórum upphæðum. Það er talsvert af fölsuðum seðlum í umferð og þetta virðist vera mikið notað gagnvart túristum útfrá því sem innfæddir segja okkur. Við lentum í þessu einu sinni og lærðum nokkur trikk til að spotta feik seðla. í fyrsta lagi á maður alltaf að athuga áferðina því hún er öðruvísi, í öðru lagi er hægt að bleyta seðla og ef þeir byrja að detta í sundur auðveldlega þá eru þeir líklega falsaðir, en sú leið sem virkar er bara að reyna að rífa þá með litlu afli. Venjulegir seðlar eru mun sterkari um munu ekki rifna auðveldlega en þeir fölsuðu gefa strax eftir. Hérna er mynd af þessari tilraun á einum fölsuðum seðli sem við fengum til baka frá leigubílstjóra.