Áður en lagt er í hann

Hvert skal halda?

Við erum ekki með ferðaplanið alveg 100% skipulagt enda viljum við ekki binda okkur of mikið. Það er þó best að bóka mánuð í einu í gistingu á Airbnb þar sem margir veita allt að 50% afslátt af langtímagistingu. Þá er oft ódýrara að bóka 28 daga en t.d. 20 daga.

Það sem við erum búin að plana er flug til til London 5. janúar 2020. Þar verðum við í tvær nætur áður en við leggjum í 14 tíma flug til Buenos Aires í Argentínu. Þar ætlum við að vera í mánuð eða til 5. febrúar. Við erum búin að leigja okkur fallega íbúð með sundlaug í úthverfi höfuðborgarinnar. Það tekur um 20 mínútur að komast með Uber inn í borgina sem er ekkert tiltökumál. Stelpurnar voru spenntari fyrir rólegri stemmningu og sundlaug en ysi og þysi sem fylgir því að vera inni í borginni. Við munum vera á svæði sem heitir Victoria eins og sjá má á kortinu hér að neðan.

5. feb förum við til Chile. Við erum búin að kaupa flug til Santiago en meira höfum við ekki planað! Það eru margir staðir sem koma til greina í Chile meðal annars Vina del mar eða playa paraiso sem eru skemmtilegar strandarborgir, við erum einnig spennt fyrir því að vera við Andes fjöllin.

Áður en lagt er í hann

Skólamál

Það þarf að huga að mörgu áður en lagt er í langa ferð.

Eitt af því sem fólk er aðallega að spyrja okkur um eru skólamál stelpnanna. Þegar við tókum ákvörðun á sínum tíma að leggja í þessa ferð ætluðum við að láta það alfarið ráðast á hvort skólinn gæfi grænt ljós á að taka stelpurnar úr skóla og við þá sjá um “heimakennslu”. Við vissum ekki hvort það tíðkaðist eða hreinlega mætti þar sem það er jú skólaskylda hér á landi. Það kom okkur því skemmtilega á óvart hversu vel kennarar stelpnanna og skólastjórnendur tóku í þessa hugmynd. Það var því ekki aftur snúið eftir jákvæða fundi í haust sem auðveldaði okkur þá ákvörðun að leggja í ferðina.

Við höfum farið á nokkra fundi í skólanum í vetur og rætt hvernig er best að haga lærdómnum. Við erum heppin með hversu stutt er á milli stelpnanna og getum þá nýtt námsefni sem Ásrún er að vinna í núna fyrir Maríu næsta ár. Einnig getum við kennt þeim t.d. stafsetningu (bæði íslensku og ensku) og lesskilning saman. Við munum leggja áherslu á íslensku og stærðfræði, ásamt lestri en einnig munum við taka með annað efni eins og samfélagsfræði en hugsunin þar að baki er að koma í veg fyrir að stelpurnar sitji eftir þegar þær koma til baka.

Við vorum svo heppin að kennarar stelpnanna eru til í að vera okkur svolítið innan handar þrátt fyrir að þurfa þess alls ekki. Við fáum að taka skóla spjaldtölvurnar þeirra með og þar geta stelpurnar unnið verkefni og skilað í gegnum google drive. Þannig geta kennararnir fylgst svolítið með framvindu mála.

Skólamálin hafa hvílt svolítið þungt á mér (Erlu) sérstaklega þar sem í þeim felast heilmikil ábyrgð og að sjálfsögðu vill maður gera vel. Við ætlum að líta til skólanámskrár við skipulagningu, bæði hversu mikill tími fer ca í hvert fag og hvað þær eiga að kunna eftir bæði 5. og 6. bekk. Við miðum við að eyða um 3 tímum á dag í lærdóm. Þess fyrir utan munum við fara á söfn, kynna okkur menningu þess samfélags sem við erum í hverju sinni, hreyfa okkur og fara á ýmis námskeið. Stelpurnar munu svo skrifa um þessar upplifanir sem eru þá partur af náminu. Þær eru búnar að fá skipulagsbækur og dagbækur, þar sem þær verða sjálfar að taka svolitla ábyrgð á sínu heimanámi.

Til að brjóta upp munum við skipuleggja 2-4x í viku símatíma með ömmum og öfum þar sem stelpurnar lesa fyrir þau og fá aðstoð t.d. við stærðfræði. Það gefur þeim einnig rúm til að tala betur saman og eiga meiri samskipti.

Áður en lagt er í hann

Bólusetningar

Sem betur fer byrjuðum við að huga nokkuð tímanlega að þeim bólusetningum sem æskilegt er að fá áður en haldið er í heimsreisu! Við fórum í alls þrjú skipti og fengum ef mér reiknast rétt til um 10 sprautur á mann. Þetta tók tvo mánuði því það þarf að bíða í allt að fjórar vikur þar til maður fær seinni sprautuna af sömu bólusetningu. Við mælum allavega með því að byrja á þessu ferli a.m.k. þremur mánuðum áður en haldið er af stað.

Við fengum öll boost á barnabólusetningar, lifrabólgu A og B, taugaveiki, gulu veikina og japanska heilahimnubólgu. Við ákváðum að sleppa bólusetningum við hundaæði þar sem það kostar c.a. 50 þúsund á mann og þrjár sprautur. Við fengum góðan fyrirlestur sem stelpurnar hlustuðu vel á varðandi hættur þess að umgangast óþekkt dýr erlendis og undir öllum kringumstæðum að láta vita strax ef eitthvað dýr klórar eða bítur.

Það er magnað hvað maður er fáfróður um Malaríu tilvik og samvæmt WHO voru 217 milljón tilvik tilkynnt árið 2017. Hjá sóttvörnum vorum við frædd vel um þetta og getum fylgst með hvar tilvik hafa greinst í þeim löndum sem við munum heimsækja. Þetta er ótrúlega útbreitt og þó við sleppum Afríku þá munum við vera með Malaríu töflur ef við heimsækjum svæði með þekktum smitum t.d. í Perú og suður Asíu.

Það gæti gæti skipt miklu máli að kynna sér þessi mál vel og við hvetjum alla sem eru að ferðast til þeirra staða þar sem hverskonar smitsjúkar eru landlægir að setja sig í samband við Göngudeild sóttvarna og fá viðtal.

Áður en lagt er í hann

Halló heimur!

Við erum fjögurra manna fjölskylda úr Hafnarfirði. Við elskum að ferðast og höfum á síðustu árum ferðast nokkuð um heiminn. Við höfum löngum langað til að leggja í langt ferðalag og ætlum árið 2020 að láta þann draum loksins verða að veruleika.

Margir hafa verið að spyrja hvar er hægt að fylgjast með okkur og þar sem við erum hvorug mjög virk á samfélagsmiðlum ákváðum við að setja upp þessa bloggsíðu. Við munum því líta á þennan vettvang sem dagbók, sem hjálpar okkur að skjalfesta ævintýrið okkar sem og miðla með öðrum.