Við komum til Chile þann 5. febrúar eftir að hafa verið mánuð í Argentínu. Mjög þægilegt ferðalag yfir frá Argentínu, bara 2 tíma flug og svo tók við um 1,5 klst akstur frá höfuðborginni Santiago til Vina del mar en þar erum við með íbúð.
Vina del mar
Við ákváðum að vera ekki í Santiago enda er hitinn þar óbærilegur, rúmlega 30 gráður sem er bara of heitt fyrir okkur. Við erum eiginlega á því að vont veður getur verið of gott – og okkar plan er að ef við getum verið úti án þess að stikna eða kafna úr hita þá er gott veður 🙂
Hér er ALLTAF 22 gráður og sól sem er fullkomið. Við erum staðsett aðeins fyrir utan Vina del mar en erum þó í göngufæri við flest m.a. nokkrar strandir.
Maria með súkkulaðihúðuð jarðaber
Við erum þó þannig staðsett að hér er alltaf mikið af fólki allsstaðar, þetta er aðalferðamannastaður Chile, bæði fyrir innfædda og utanaðkomandi þannig að strandirnar hér eru pakkaðar. Í janúar og febrúar eru allir í fríi í S-Ameríku sem þýðir = enn meira fólk. Við erum þó ánægðari með að geta verið eitthvað úti, fullkomið hitastig og við erum aðeins útúr þannig að það er ekki mikið áreiti í kringum okkur.
Mikið um að vera, matur, drykkir og sölubásar
Húsið okkar er 25 hæða fjölbýli, við erum á 4. hæð. Við höfum aðgang að sundlaug og líkamsrækt og hér stutt frá er öll þjónusta sem við þurfum. Annars förum við allt í Uber en það er frekar ódýrt, þó ekki eins ódýrt og í Argentínu.
Hér er allt um 30% dýrara en í Argentínu. Verðin þar eru sum bara algjört djók og maður skilur eiginlega ekki af hverju það er ekki fleiri túristar þar miðað við hvað hægt er að fá fyrir peninginn.
Stelpurnar létu teikna mynd af sér, það má deila um hvort þetta sé líkt þeim!
Við erum ekki að fara að sjá fram á að vera mjög menningarleg hér í Chile enda erum við á ferðamannastað þar sem mikið er gert út á mat, drykk og djamm – en við erum ekki alveg í þeim hugleiðingum!
Annars erum við núna að njóta þess að fara á ströndina í dásamlegu veðri á milli þess sem við bæði vinnum og sjáum um kennslu stelpnanna. Við þurfum að átta okkur á hvað við getum gert meira skemmtilegt hér og upplifa hvað landið hefur upp á að bjóða 🙂
Stelpurnar voru mjög spenntar fyrir hestaferð og eftir að hafa skoðað úrvalið af ferðum í gegnum Airbnb fundum við fullkomnu ferðina. Bæði var það hestaferð og ferðalag yfir til nágrannana í Uruguay.
Við ákváðum að fara degi fyrr og gista eina nótt á hóteli, annars hefðum við þurft að vakna mjög snemma og vera þreytt í ferðinni sjálfri. það gekk vel að komast yfir í borgina Colonia, ekki nema rúmlega klukkustunda sigling í þægilegri ferju frá Buenos Aires.
Borgin Colonia er yndisleg lítil borg sem hefur ekki nema um 26þúsund íbúa. Hún er líklega meira ferðamannaborg og eru margir heimamenn sem eiga sumarhús þarna. Við gengum aðeins um bæinn á sunnudeginum og það sem stóð uppúr hjá stelpunum var laugin á hótelinu. Þar voru þær í þrjá tíma 🙂
Á mánudeginum sótti leiðsögumaðurinn David, okkur, á hótelið. David er maður um sextugt og er hafsjór af fróðleik. Hann er frá Suður Afríku og hefur búið út um allan heim, bæði í að þjálfa hesta og hestafólk og líka í að reka ferðaþjónustur með hestaferðir. Hann keyrði með okkur upp í sveit þar sem Marcelo tók á móti okkur. Marcelo er “gaucho” en það eru þeir sem sjá um hesta frá A til Ö. Hann í rauninni býr í hesthúsinu og vakir með hestunum ef þeim líður ekki vel. Marcelo var búinn að finna hesta sem hentuðu okkur og leggja á.
David og Marcelo fóru svo báðir með okkur í langan reiðtúr, að ströndinni og til baka. Það sem er merkilegt við vatnið er að við héldum að þetta væri Atlantshafið en er í raun vatnið Rio de la plata. Okkur fannst nefnilega vatnið vera svo gruggugt og ógeðslegt og skyldum ekki alveg hvernig fólk var til í baða sig í því en við sáum helling af fólki í vatninu við ströndina. Vatnið er þeirra vatnslind og er mjög hreint, það má þess vegna drekka það. Ástæðan fyrir hversu gruggugt það var, var vegna veðursins þennan dag. það er nefnilega mjög grunnt og þarf lítið til að ífa upp sandinn á botninum. Það er því ekki vatnsskortur í Uruguay frekar en hér í Argentínu. Það er því hægt að rækta allt milli himins og jarðar.
Eftir hestatúrinn fór David með okkur á matsölustað inni í Colonia en á þeim stað eru aðeins afurðir frá þeim bóndabæ sem við fórum á hestana. Það er prinsipp þarna að styðja við local bændur, á móti veistu nákvæmlega hvaðan afurðin er og er hún ávallt mjög fersk. David nefndi að hann hefði aldrei verið í eins góðu formi eins og eftir að hann flutti til Uruguay, ferskari mat er varla hægt að fá. Colonia hefur líka bannað allar skyndibita- og matvörukeðjur! þannig að það er mjög ljúft að ganga um þennan fallega bæ án þess að vera upptekinn af öllu áreitinu/freistingunum sem því fylgir.
Við enduðum daginn á að fá private túr um bæinn með guide sem hefur búið allt sitt líf í Colonia. Hún var ekki minni hafsjór af þekkingu en David. Við fengum að vita allt um hvers vegna borgin er á heimsminjaskrá Unesco og hvað gerir hana svona sérstaka (nú fyrir utan að vera laus við alla skyndibitastaðina! 🙂
En í kringum 1700 áttu Spánverjar og Portugalir í um 100 ára stríði um borgina og eru ummerkin greinileg. Það sem er merkilegast er byggingarstíllinn en það er greinilegt hvenær hver var við völd. Til að mynda eru portúgölsku göturnar mjög þröngar og með engum göngustígum en spænski stíllinn er með göngustígum og svo eru rimlar fyrir gluggum. Þegar gengið er um gamla bæinn má sjá að húsin þar eru flest öll upprunaleg og eru því friðuð. Í þeim húsum eru því mest söfn, einstaka fjölskyldur eiga þó hús en mega ekki eiga neitt við húsin að utan. Þetta er því meira ferðamanna-attraction frekar en búsetusvæði. Maður skilur alveg ástæðu þess að fólk vill eiga sumarhús á þessu svæði, en margir eiga hús aðeins fyrir utan borgina en það er bara um 20 mínútna akstur upp í sveit. Þarna er ótrúlega friðsælt og öruggt að vera.
Þegar við höfum verið að fara inn í Buenos Aires sem er reyndar ekki oft, höfum við þurft að skipuleggja aðeins daginn. Borgin er svo stór að það er erfitt að komast yfir marga hluti í einu. Svo er líka búið að vera mjög heitt þannig að við höfum reynt að fara þegar það er “bara” 27 stiga hiti en ekki 30 plús. Við sjáum mjög mikinn mun á úthaldinu hjá stelpunum þegar það er aðeins svalara. Þær eru ekki bara orkumeiri heldur líka betri í skapinu 🙂
Við gengum einn daginn um 11 kílómetra í Recoletta (hverfi í Buenos Aires) þannig að bæjarferðirnar eru okkar líkamsrækt líka. Í Recoleta er ótrúlegur kirkjugarður, með grafhýsum ýmissa efnaðra fjölskyldna. Þar hvílir meðal annars Duarte fjölskyldan ásamt Evu Perón (Evitu). Það vakti athygli okkar að hennar grafhýsi var frekar tilkomulítið miðað við önnur en klárlega það sem dró að sér mestu athygli.
Það var svolítil upplifun að ganga þarna um, mjög ólíkt þeim görðum sem við höfum heima. Stelpunum fannst hálfógnvekjandi að kíkja inn í sum grafhýsin þar sem kisturnar sáust, sum voru í algerri niðurníðslu á meðan öðrum er vel viðhaldið með aðstöðu þar sem fjölskyldan getur komið og syrgt.
Við gengum að Floralis Genérica sem er fallegur skúlptúr í hjarta Recoletta. Svæðið í kring er ótrúlega fallegt og friðsælt. Skúlptúrinn eða blómið opnast og lokast eftir því hvernig sólin skín á það. T.d. lokast það alveg á kvöldin.
Það eru ótrúlega margir fallegir garðar inni í höfuðborginni. Þeir taka við liggur við hver af öðrum og eru hver öðrum fallegri. Við fórum í japanska garðinn en það er líklega eini garðurinn sem þurfti að borga sig inn. Það kostar annars lítið eða ekkert inn á staði eða söfn. Það er líka alltaf frítt fyrir börn. Japanski garðurinn er æðislegur, þar er fjölbreyttur gróður og mikið úrval af bonsai trjám. Stelpurnar nutu sín í að gefa Koi fiskum að borða og keyptu sér svo japanskan brjóstsykur, það þarf ekki mikið til að gleðja þær 🙂
Ég held að við höfum sjaldan verið eins dugleg að grilla eins og síðustu daga. Í húsinu sem við erum í er risastórt útigrill ásamt pizzaofni. Það er mjög freistandi að leyfa sér ýmislegt í mataræðinu hér, matur sem við köllum lúxus heima er eitthvað sem heimamenn borða hér daglega. Það er hægt að verða sér út um úrvalsnautalund á innan við 1000kr kílóið og með því er hægt að fá sér rauðvínsflösku á 200kr.
Það er því mjög auðvelt og freistandi að leyfa sér í mat drykk. Hér er þvílíkt úrval af nautakjöti, ostum og víni. Eins og gefur að skilja. Það er mjög ríkt í menningunni að grilla og það er mjög fyndið að á ákveðnum tíma dags að þá finnur maður lyktina í loftinu, þá eru allir að grilla. Asado er það kallað þegar allskonar kjöt er grillað yfir opnum eldi.
Hér nálægt okkur er lítill verslunarkjarni þar sem hægt er að ná í helstu nauðsynjar. Þar eru meðal annars kaffihús, veitingastaðir, apótek, bakarí og kjötverslun. Þetta er frekar fancy kjarni – þar sem við búum meðal efnaðra heimamanna. Hér er því allt mjög snyrtilegt og fínt, sem er frekar sjaldséð sjón því miður. Í kjötbúðinni er hægt að fá úrvalskjöt og meðlæti fyrir lítinn pening. Teddi er rosalega glaður með þetta og hefur tekið alfarið að sér eldamennskuna ☺️
Það sem hefur komið okkur mest á óvart er hversu lítið úrval eða lélegt úrval er af ávöxtum og grænmeti. Ég var búin að hlakka til að fá mér djúsí ber og brakandi ferskt salat. Við fórum í nokkrar stórverslanir (Carrefour, Walmart og Jumbo t.d) áður en við áttuðum okkur á því að það eru sérstakar gourmet búðir sem selja ferska ávexti og grænmeti.
Matarmenningin er aðeins öðruvísi en því sem við erum vön þannig að það er auðvelt að eiga í Love-hate sambandi við matinn hérna. Það er alveg ótrúlegt að labba inní riiisa stóra matvöruverslu og sjá allt úrvalið af kjötvöru og ostum sérstaklega – einnig víni að sjálfsögðu enda Argentínumenn þekktir fyrir gott léttvín. En þegar kemur að óhollustu eins og við erum vön að sjá í verslunum heima er nánast ekkert úrval.
Það sem er innflutt frá USA er rándýrt og kostar margfalt meira en heima. Þannig að það er lítið úrval af slíkum vörum. Það sem er vinsælast af brauðmeti eru medialunas eða croissants. Svo eru auðvitað til óhollustu brauð og kökur en úrvalið er ekki upp á marga fiska. Kex og nammi þekur ca 1/4 af rekka í stórri búð.
Eftirréttir eru oftast ekki mjög sætir, oft eru t.d ávaxtasalöt í eftirrétt. Þeir eru mjög hrifnir af “flan” sem er búðingur sem er líkur creme brulee og er borinn fram með dulce de leche sem er karamella. Þetta er mjög vinsælt hér.
Argentínubúar elska kökurnar sínar sem kallast “alfajores” sem eru einskonar maiskökur með dulce se leche á milli. Þær er þó hægt að fá í alls konar útgáfum. “Nammibúðirnar” hér eru aðallega frá framleiðanda sem selur alfajores en þær heita “Havanna”. Okkur finnst þessar kökur ekkert frábærar, þessar einföldu eru bestar.
Við fengum þessa gjöf þegar við mættum í húsið. Svona lúxus útgáfa af Alfajores
Það er semsagt ástæða fyrir því að fólk hér er almennt mjög fit og flott. Það er ekki mikið borðað af sælgæti og hér hreyfa allir sig mikið.
Það má samt ekki draga úr því að ég hef sjaldan séð eins marga skyndibitastaði og hér. Það er mcDonalds á hverju horni liggur við. Við erum ekki spennt fyrir skyndibitastöðunum og reynum að velja frekar local staði en þegar maður er svangur er auðvelt að falla í þá gryfjuna 😅
Empanadas! þeim má ekki gleyma. Empanadas eru litlar bökur, yfirleitt með nautakjöti og grænmeti innan í. En hægt að fá í alls konar útgáfum. Við höfum reyndar ekki verið dugleg að fá okkur svoleiðis, þær eru mjög bragðgóðar og einfaldur matur. Annars erum við dugleg að fara út að borða, það er alls ekki dýrt. Hér er er yfirleitt hægt að fara út að borða á góðan stað fyrir um 6000isk. Þá eru kokteilar fyrir okkur Tedda með í því, ásamt bjór eða rauðvíni. Oft líka einn eða tveir eftirréttir. Ódýrari staðir eins og hér nálægt er frábær hamborgarastaður, við getum borðað okkur södd fyrir um 3000kr. (með bjór). Það hefur komið fyrir að við vitum ekki hvað við erum að panta eða hverju við eigum von á, en við látum það nú ekki stoppa okkur og látum vaða, yfirleitt er allt mjög gott. Læt hér fylgja með nokkrar matarmyndir í lokin.
Lífið hér er sko ekki eintómt frí þótt það sé auðvelt að detta í þann gírinn. Að vakna við birtuna, sólargeislana og fuglasönginn er dásamlegt og að geta sest út með morgunkaffið til að plana daginn er eitthvað sem hægt er að venjast.
Við byrjum vanalega daginn á að vekja stelpurnar um 8 leytið, til að halda rútínu. Ég bjó til stundaskrá sem getur verið breytileg frá degi til dags, veltur á þeim plönum sem við ákveðum, aðallega útfrá veðurspá.
Týpískur dagur er að byrja á stærðfræði um 9 leytið og vinna í henni þar til spænskukennarinn okkar, Klementina kemur. Þá tekur við klukkustund í spænsku fyrir okkur Tedda og svo klukkutími fyrir stelpurnar. Meðan við Teddi erum í spænsku fá stelpurnar vanalega verkefni sem þær geta leyst án aðstoðar eða unnið saman í t.d skrifa póstkort, vinna í book creator (sniðugt app til að setja saman ferðasögu – þar er hægt að blanda saman myndum, myndböndum og skriflegu formi) sem þær senda svo á bekkinn sinn á Íslandi.
Eftir spænskuna höfum við tekið matarhlé og svo hreyft okkur t.d göngutúr/sund en það hefur verið erfitt vegna hita. Í lok “skóladags” höfum við tekið íslensku.
Sumt hefur verið ansi krefjandi og við kannski ekki bestu aðilarnir til að útskýra, við höfum þá fengið hjálp frá afa Rúnari með stærðfræðina og ætlar afi Gísli líka að hjálpa. Það hefur reynst erfitt að finna rétta tímann þar sem það er þriggja tíma munur og afarnir fara ansi snemma í háttinn 😅
Ásrún að face-time afa sinn, hann var að hjálpa henni með rúmfræðina
Við erum annars mjög sveigjanleg með lærdóminn en reynum að halda áætlun, við sjáum alltaf hvar skólafélagarnir eru staddir í náminu heima. Planið hjá okkur var líka að vinna okkur eitthvað áfram til að eiga inni frídaga t.d. til að fara í ferðir. Það hefur að vísu gengið hægt hjá okkur enda mikið búið að vera að gera í verkefnum hjá mér og Teddi er byrjaður í sinni vinnu eftir smá frí. Spænskukennslan tekur lúmskan tíma þannig að annað verður að bíða á meðan.
Það hefur komið okkur á óvart hversu krefjandi sumt af námsefninu er fyrir stelpurnar og reynum við þá að gefa okkur meiri tíma í það, annars eru þær ótrúlega duglegar og kvarta lítið. Þær eru alltaf spenntar fyrir spænskukennslunni enda Klementína frábær kennari og er snillingur í að miðla efninu í gegnum leiki, sérstaklega hlutverkaleiki. Á morgun munu stelpurnar t.d. setja sig í spor kaffihúsaeigenda og við eigum að panta mat og drykki 🙂
Við höfum ekki verið mikið á faraldsfæti eftir að við komum hingað. Ákváðum að nota fyrstu dagana í að koma vinnu og skóla í gang, búa til skipulag og fleira. Við ákváðum þó að fara í dagsferð inn í El capital eins og margir heimamenn tala um eða Buenos Aires. Það tekur okkur um hálftíma í bíl að komast og ekki nema um 1200 íslenskar krónur.
Við ákváðum að stoppa fyrst á 9 de Julio avenida sem er eitt helsta kennileiti borgarinnar. Gatan vísar í þjóðhátíðardag Argentínubúa, 9. júlí og er ein sú breiðasta í heimi með heilar níu akreinar hvorum megin (140m). Í miðjunni er fallegt torg með minnisvarðanum Obelisco sem er einnig vinsæll áfangastaður ferðamanna.
Við fengum okkur hádegismat á elsta kaffihúsi borgarinnar en við eiginlega römbuðum þangað fyrir slysni. Við sáum röð fyrir utan og hugsuðum með okkur að þetta hlyti nú að vera geggjaður staður. Það ríkti mikil leynd yfir staðnum enda var dregið fyrir alla glugga og fólk beið með símana á lofti til að taka myndband þegar það loksins fékk að ganga inn. Við vorum búin að gera okkur svo miklar vonir en svo var staðurinn bara meðalgóður 🙂
Því næst gengum við að Casa Rosada sem er forsetabústaður Argengtínu og er staðsettur við Plaza de Mayo. Nafnið á torginu er nefnt eftir þeim mánuði sem Argentína vann sjálfstæði frá Spáni 1816, maí-torg og eru margar sögufrægar byggingar þarna í kring. Kannski þekktast er þegar Eva Peron eða Evita stóð á svölunum á Casa Rosada og hélt ræður ásamt eiginmanni sínum Juan Peron.
Við tókum svo göngu um La Boca en það er skemmtilegt og litríkt hverfi, svolitið miðað að ferðamanninum. Þar er hægt að sjá og upplifa hvað felst í argentískri menningu – litir, gleði, dans, tónlist og matur. Stelpurnar eiga mjög erfitt með að sjá alla flækingshundana sem eru hér en svo virðist sem þeir lifi bara ágætis lífi. Þeim er gefið að éta og fá að drekka hjá heimamönnum. Við sáum konu sem var með nokkra hunda sem hún hafði greinilega tekið að sér og var búin að þjálfa upp fyrir uppstillingu fyrir myndatöku, auðvitað fyrir smá pening. Maður hálfvorkenndi dýrunum en hún var með treat til að gefa þeim og þeir virtust sáttir.
Við enduðum daginn á steikhúsi þar sem við fengum RISA steik sem okkur láðist að taka mynd af 😲 ætli við verðum ekki bara að fara aftur til að geta deilt því með ykkur ☺️
Þegar við vorum að skoða hvar væri nú best að vera í Argentínu komu margir staðir til greina. Eftir að hafa lesið okkur til langaði okkur helst að vera í kringum höfuðborgina og komu þá nokkur svæði til greina. Borgin er stór, en þar búa um 3 milljónir manna og er ekki einn eiginlegur miðbær heldur eru nokkur hverfi sem gaman er að heimsækja. Ég veit ekki hversu mörgum kvöldum við Teddi sátum yfir Airbnb að skoða mismunandi íbúðir inni í borginni. Það er erfitt að finna hina fullkomnu íbúð sem hentar fyrir fjölskyldu með kröfur! við vildum helst hafa aðgengi að sundlaug en það sem var bara í boði voru litlir pottar og helst til of þröngar íbúðir. Byggðin er mjög þétt og mikið um háar íbúðarblokkir í misgóðu ásigkomulagi. Við vorum fegin að hafa ákveðið að vera í úthverfi eftir að hafa farið inn í borgina, þótt hún búi yfir miklum sjarma þá er mikill kostur að geta verið útaf fyrir sig í ró og næði, með nægilega mikið pláss og jú sundlaug! Hér erum við líka handviss um að upplifa meira enda nánast “út í sveit” og aðeins innan um heimamenn.
Það kom til greina að vera í nokkrum hverfum innan Buenos Aires, það sem við lásum helst til um er að Belgrano er það fjölskylduvænasta, það er frekar rólegt og fínt upper-middle class hverfi og telst nokkuð öruggt. Palermo er stórt hverfi og skiptist í mörg lítil hverfi. Það er þekkt fyrir að vera frekar hipp og cool. Þar er mikið um að vera og þekkt fyrir gott næturlíf. Recoletta er þekkt fyrir falleg hús/arkitektúr. Fasteignaverð er með því hæsta sem gengur í borginni og þar eru einnig bestu skólarnir. La Boca er er skemmtilegt svæði með litríkum húsum og miklu lífi. Staðurinn miðar svolítið inná ferðamanninn en þar er mikið um túristabúðir með sömu vörunum og alls konar básum þar sem heimamenn selja handverk og annað. Þar er hærra crime rate en annars staðar en á að vera í lagi ef maður heldur sig á ferðamannastöðunum. Það fer ekki á milli mála að fótbolti er eitt aðalsportið hér, en það á að vera mjög gaman að heimsækja völl Boca Juniors eða boca juniors stadium.
Meira skoðuðum við nú ekki sérstaklega en hverfin hafa öll sinn sjarma og ekki erfitt að komast á milli staða.
Eins óraunverulega og það hljómar, þá erum við komin til Argentínu! 🇦🇷
Eftir tvo góða daga í London í ágætis vorveðri á íslenskan mælikvarða tók við 14 tíma flug beint til Buenos aires.
Flugið með Norwegian gekk dásamlega vel, keyptum okkur dýrari sæti þar sem hægt var að halla sætinu alveg niður. Við fengum því dýrmætan nætursvefn 🙏🏻 Sem var eins gott því við tók rúmlega klukkustundar röð í gegnum immigration, þar sem allt gekk á hraða snígilsins. Ekki nóg með það, þá var hreinlega ómögulegt að fá stóran Uber hér í borg. Við gáfumst upp á Uber eftir annan eins klukkutíma og ákváðum að hoppa upp í stóran Taxa, þrátt fyrir að hafa heyrt að það væri algjört NoNo 😲 við ákváðum að treysta eldri manni sem keyrði okkur alla leið að Airbnb íbúðinni okkar sem staðsett er ca 45 mín frá flugvellinum. Farið kostaði heila 35 us dollara 😅
Dugleg að bíða eftir fari í húsiðMjög þreytandi að bíða
Húsið sem við leigðum er staðsett í úthverfi Buenos aires sem heitir San Fernando – Virreyes og tekur um 20 mín að komast í mesta fjörið. Hér erum við örugg í gated community, erum í húsinu þeirra Male og Ramiro. Male er einhverskonar innanhússhönnuður og er dugleg að instagramma það sem hún gerir og því sem við kemur að viðhaldi á húsinu.
Í dag og næstu daga er planið að ná áttum og jafna okkur á tímamismun – þótt hann sé nú ekki mikill (- 3 klst) og venjast hitanum. Hér er náttúrulega hásumar og getur orðið ansi heitt yfir daginn eða + 30°.
Hér þurfum við ekki að hafa áhyggjur af tiltekt en við fáum daglega húshjálp, Fernanda sem sér um öll þrif en hún kemur á hverjum degi! hér er ætlast til og algengt að fólk hafi húshjálp, allavega í úthverfum. Þetta er frekar óvanalegt fyrir okkur og er eitthvað sem við þurfum að venjast! Stelpunum finnst mjög óþægilegt að hafa ókunnuga konu í húsinu og vilja helst halda sig í herberginu sínu meðan hún er hér 😅
Meðan stelpurnar brenna orkunni í lauginni ætlum við að skipuleggja lærdóminn og búa til dagskrá. Hér í göngufæri eru litlar verslanir og kaffihús þar sem hægt er að fá allt til alls, meðal annars föndurdót og skriffæri. Við neyðumst til að læra eitthvað í spænskunni sem er jákvætt því planið var að fá okkur spænskukennara. Á okkar svæði eru nefnilega engir túristar og örfáir sem tala ensku. Næsta mál á dagskrá er því að finna kennara og bóka okkur í einhverjar menningartengdar ferðir á næstu dögum.
Á kaffihúsinu sem er hér í göngufæri, að spila og borða Argentískar kökur
Við erum ekki með ferðaplanið alveg 100% skipulagt enda viljum við ekki binda okkur of mikið. Það er þó best að bóka mánuð í einu í gistingu á Airbnb þar sem margir veita allt að 50% afslátt af langtímagistingu. Þá er oft ódýrara að bóka 28 daga en t.d. 20 daga.
Það sem við erum búin að plana er flug til til London 5. janúar 2020. Þar verðum við í tvær nætur áður en við leggjum í 14 tíma flug til Buenos Aires í Argentínu. Þar ætlum við að vera í mánuð eða til 5. febrúar. Við erum búin að leigja okkur fallega íbúð með sundlaug í úthverfi höfuðborgarinnar. Það tekur um 20 mínútur að komast með Uber inn í borgina sem er ekkert tiltökumál. Stelpurnar voru spenntari fyrir rólegri stemmningu og sundlaug en ysi og þysi sem fylgir því að vera inni í borginni. Við munum vera á svæði sem heitir Victoria eins og sjá má á kortinu hér að neðan.
5. feb förum við til Chile. Við erum búin að kaupa flug til Santiago en meira höfum við ekki planað! Það eru margir staðir sem koma til greina í Chile meðal annars Vina del mar eða playa paraiso sem eru skemmtilegar strandarborgir, við erum einnig spennt fyrir því að vera við Andes fjöllin.
Það þarf að huga að mörgu áður en lagt er í langa ferð.
Eitt af því sem fólk er aðallega að spyrja okkur um eru skólamál stelpnanna. Þegar við tókum ákvörðun á sínum tíma að leggja í þessa ferð ætluðum við að láta það alfarið ráðast á hvort skólinn gæfi grænt ljós á að taka stelpurnar úr skóla og við þá sjá um “heimakennslu”. Við vissum ekki hvort það tíðkaðist eða hreinlega mætti þar sem það er jú skólaskylda hér á landi. Það kom okkur því skemmtilega á óvart hversu vel kennarar stelpnanna og skólastjórnendur tóku í þessa hugmynd. Það var því ekki aftur snúið eftir jákvæða fundi í haust sem auðveldaði okkur þá ákvörðun að leggja í ferðina.
Við höfum farið á nokkra fundi í skólanum í vetur og rætt hvernig er best að haga lærdómnum. Við erum heppin með hversu stutt er á milli stelpnanna og getum þá nýtt námsefni sem Ásrún er að vinna í núna fyrir Maríu næsta ár. Einnig getum við kennt þeim t.d. stafsetningu (bæði íslensku og ensku) og lesskilning saman. Við munum leggja áherslu á íslensku og stærðfræði, ásamt lestri en einnig munum við taka með annað efni eins og samfélagsfræði en hugsunin þar að baki er að koma í veg fyrir að stelpurnar sitji eftir þegar þær koma til baka.
Við vorum svo heppin að kennarar stelpnanna eru til í að vera okkur svolítið innan handar þrátt fyrir að þurfa þess alls ekki. Við fáum að taka skóla spjaldtölvurnar þeirra með og þar geta stelpurnar unnið verkefni og skilað í gegnum google drive. Þannig geta kennararnir fylgst svolítið með framvindu mála.
Skólamálin hafa hvílt svolítið þungt á mér (Erlu) sérstaklega þar sem í þeim felast heilmikil ábyrgð og að sjálfsögðu vill maður gera vel. Við ætlum að líta til skólanámskrár við skipulagningu, bæði hversu mikill tími fer ca í hvert fag og hvað þær eiga að kunna eftir bæði 5. og 6. bekk. Við miðum við að eyða um 3 tímum á dag í lærdóm. Þess fyrir utan munum við fara á söfn, kynna okkur menningu þess samfélags sem við erum í hverju sinni, hreyfa okkur og fara á ýmis námskeið. Stelpurnar munu svo skrifa um þessar upplifanir sem eru þá partur af náminu. Þær eru búnar að fá skipulagsbækur og dagbækur, þar sem þær verða sjálfar að taka svolitla ábyrgð á sínu heimanámi.
Til að brjóta upp munum við skipuleggja 2-4x í viku símatíma með ömmum og öfum þar sem stelpurnar lesa fyrir þau og fá aðstoð t.d. við stærðfræði. Það gefur þeim einnig rúm til að tala betur saman og eiga meiri samskipti.